Klúbbur ES á Íslandi
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Klúbbur ES á Íslandi

Klúbbur enskra seta á Íslandi
 
HomeLatest imagesLeitaNýskráningInnskráning

 

 Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða.

Go down 
4 posters
HöfundurSkilaboð
Sigþór

Sigþór


Fjöldi innleggja : 16
Join date : 20/07/2008

Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Empty
InnleggEfni: Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða.   Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Icon_minitimeFös Des 05, 2008 4:23 pm

Var verið að úthluta fríu redalini ? fullt af myndum fullt af fréttum....
Til baka efst á síðu Go down
Friðvin

Friðvin


Fjöldi innleggja : 88
Join date : 07/05/2008

Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Empty
InnleggEfni: Re: Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða.   Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Icon_minitimeLau Des 06, 2008 4:43 am

Sæll Sigþór.

Ég var nú að gamni að skrolla niður heimasíðuna og ég verð að segja að mér finnst afar lítið um efni á henni sem gerir hana sambærilega við einhverskonar facebook síðu. Engu að síður þá finnst mér öll gagnrýni af hinu góða svo lengi sem menn eru málefnalegir.

Okkur hefur ekki gengið vel að afla efnis fyrir heimasíðuna og það má segja að það séu ákveðin vonbrigði að við höfum ekki fengið neitt efni sent frá ensk setter mönnum frá nýliðnum rjúpnaveiðum en aðsent efni er megin forsemda þess að heimasíðan sé skemmtileg og í reglulegri uppfærslu.

Síðan heimasíðunni var hleypt af stokkunum teljum við að flest allar fréttir sem teljast mikilvægir viðburðir ásamt upplýsingum sem tengjast enska setanum á þessu ári hafi verið komið á framfæri. Þó verður að viðurkennast að vöntun hefur verið á fréttum af ræktunarmálum enska setans. Það stendur til bóta en tekið skal fram að við birtum ekki leyndarmál í heimildarleysi og því er hætt á að umfjöllun um ræktunarmál verði ekki fullnægjandi.


Svona heilt yfir þá höfum við fengið mjög jákvæð ummæli um heimasíðuna frá þeim ensk setter eigendum sem við höfum verið í sambandi við. Sérstaklega fengum við gríðarlega mikil og góð viðbrögð og comment við myndskeiðinu af Kidda og Prímu ásamt Pétri og Flóka sem birt var á heimasíðunni síðasta mánuði.

Eins og gefur að skilja þá eru ekki allir ensk setter eigendur ánægðir með þessa heimasíðu.Til marks um það þá höfum við fengið ítrekaða beiðni frá ákveðnum aðila um að loka heimasíðu enska setans. Að sjálfsögðu hugleiddum við það og í framhaldinu tókum við þá ákvörðun að verða við þeirri beiðni ef að þessi ákveðni aðili myndi sjá sér fært um að opna nýja heimasíðu um málefni enska setans á Íslandi.

Kveðja.
F.G.
Til baka efst á síðu Go down
Sigþór

Sigþór


Fjöldi innleggja : 16
Join date : 20/07/2008

Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Empty
InnleggEfni: Re: Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða.   Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Icon_minitimeLau Des 06, 2008 5:12 am

Sæll Friðvin

Videoið af Kidda og Pétri var mjög gott og gaman að sjá ný andlit á þeirri síðu, renndu yfir hin og þá kannski skylurðu hvað ég á við með Facbook. Ekki veit ég hvort menn hafi sent inn video eða þau fást ekki birt eins og sumt.

Allavega er ég búinn að gefast upp á að senda inn á þetta eða bjóðast ýtrekað til að vinn í þessu, eins og þú veist er ég ýtrekað búinn að bjóðast til að gera ákveðna hluti.

ps.
Þú er búinn að standa þig mjög vel og hlutunum ekki beint til þín.

kveðja
Sigþór
Til baka efst á síðu Go down
Hjalti R.

Hjalti R.


Fjöldi innleggja : 33
Join date : 06/05/2008
Staðsetning : Akranesi Merkurteigur 8

Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Empty
InnleggEfni: Re: Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða.   Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Icon_minitimeLau Des 06, 2008 6:28 am

Sæll Sigþór!
Þar sem hlutunum er ekki beint til Friffa þá hlít ég að taka það til mín.
Já ég man eftir pósti frá þér þar sem þú bauðst til að redda myndum af öllum enskum setum
á Íslandi að mig minnir eða eitthvað í þeim dúr.
Að sjálfsögðu myndum við taka því með feginshendi.
En þú þarft ekki okkar leifi til að útvega þær og senda okkur.

Þú segir “Ekki veit ég hvort menn hafi sent inn video eða þau fást ekki birt eins og sumt”

Varðandi video þá finnst mér þetta skammarlegt af þér að koma með svona lágkúru hér inn á spjallið
og bara því miður ekki svara vert.

Varðandi “eins og sumt” þá man ég nú ekki eftir því að hafa ekki sett inn á vefinn það sem þú hefur sent (minni að það séu bara myndir) en þar sem tölvan mín hrundi og ég missti allan póst þá get ég ekki flett því til að skoða.

Virðingarfyllst
Hjalti R.
Til baka efst á síðu Go down
http://www.hjaltir.com
Sigþór

Sigþór


Fjöldi innleggja : 16
Join date : 20/07/2008

Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Empty
InnleggEfni: Re: Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða.   Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Icon_minitimeLau Des 06, 2008 8:07 am

Rétt er það Hjalti ég bauðst til að hringja í alla og spurði jafnframt hverjir væru búnir að senda svo ekki væri verið að hringja í þá aftur, ekki lagðist þú það lágt að svara því frekan þegar ég sendi þér samskonar póst mánuð seinna.
Hvað þá varðandi myndabreytingar sem ég er búinn að biðja þig að laga síðan í júlí 'ITREKAð. og setja inn myndirnar sem ég sendi þér í MAI.

Tölvan hefur greinilega hrunið reglulega og lagast, þar sem þitt efni kemur í sveiflum, en bendi á að það er sá sem stjórnar tölvinn sem gerir hlutina en ekki tækið sjálft.

Það er auðvelt að klóra yfir eigin ...... með að segja aðra vera með lágkúru.

gangi þér vel.

kv
Sigþór
Til baka efst á síðu Go down
Hjalti R.

Hjalti R.


Fjöldi innleggja : 33
Join date : 06/05/2008
Staðsetning : Akranesi Merkurteigur 8

Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Empty
InnleggEfni: Re: Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða.   Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Icon_minitimeLau Des 06, 2008 11:41 am

Sæll Sigþór!
Hvernig ég svaraði þér hér að ofan var mjög óábyrgt af mér og vil ég biðja þig afsökunar á því.
Ég tel að ef einhver ágreiningsmál og eða annað kunni að koma upp á milli manna þá sé þetta ekki rétti vettvangurinn til að leysa svoddan mál.

Þetta er ekki stór félagskapur og því auðvelt að sundra honum og en að sjálfsögðu er það alls ekki það sem við viljum (enginn okkar held ég).

Til að skíra mína hlið á málunum langar mig bara að segja.
Varðandi vidio” Það hafa engin vidio borist til mín til að setja inn á síðuna og á meðan verið var að koma síðunni af stað og reyna að kveikja áhuga manna til að senda okkur vídio og myndir sendi ég vídio af hundunum mínum inn. Það þarf stanslaust að vera að koma efni inn til að halda síðunni gangandi. En það eru líka vidio af öðrum hundum en mínum þó svo ég hafi tekið þau og klippt.
Það vill svo til að ef ekkert er að gerast hætta menn að nenna að kíkja í heimsókn og ef það gerist þá er enginn tilgangur með heimasíðunni.
Vídioin hafa verið mjög vel sótt þannig að við þurfum nú kannski ekkert að skammast okkur fyrir það þó þau séu kannski að meirihluta af mínum hundum.
En eins og fyrr segir meiga allir senda inn vídio af hundunum sínum, það er ekki málið.

Þú bauðst til að hringja út og falast eftir myndum af hundum félagsmanna. Það var bara hið flottasta mál og bið ég þig afsökunar aftur að hafa klúðrað því að svara þér.
En í framhaldi af því og ef vilji þinn er enn til staðar má hringja í alla félagsmenn okkar og fá þá til að taka myndir og senda til okkar.
Við höfum engan lista yfir ensk setter eigendur en hann væri hægt að nálgast hjá HRFÍ.

Varðandi það að sameina myndaalbúmin af Kaldalóns Doppu er nú bara slugsháttur hjá mér fyrir utan það að ég hef ekki komist inn í albúmið í langan, langan tíma.

Kveðja Hjalti R
Til baka efst á síðu Go down
http://www.hjaltir.com
pointer

pointer


Fjöldi innleggja : 12
Join date : 13/06/2008
Age : 72
Staðsetning : Kópavogur

Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Empty
InnleggEfni: Re: Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða.   Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Icon_minitimeLau Des 06, 2008 2:24 pm

Strákar þið eruð það fámennir að þið megið ekki við ágreiningi að þessu tagi. Á meðan að örfáir fuglahundamenn elda saman grátt silfur þá skeður ekki neitt nema neikvæðni. Þið eigið framtíðina fyrir ykkur, ekki fokka henni upp strax........!
Kv,
Á.H.
Til baka efst á síðu Go down
Sponsored content





Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Empty
InnleggEfni: Re: Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða.   Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða. Icon_minitime

Til baka efst á síðu Go down
 
Heimasíða fyrir alla eigendur ES - ekki facebooksíða.
Til baka efst á síðu 
Blaðsíða 1 af 1
 Similar topics
-
» Allt um hundana okkar

Permissions in this forum:Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
Klúbbur ES á Íslandi :: Hunda umræða :: Almenn umræða-
Fara til: