Sælir
Fór á hæðirnar í kvöld og eða um fimm að ganga sex og var varla kominn út úr bílnum þegar ég sá 10-15 stykkja rjúpnahóp koma fljúgandi og lenda í hlíðinni þar sem fyrirhuguð gönguleið var.
Ég lét Venus í slepp fljótlega eftir að ég var kominn í rætur hlíðarinnar og átti von á því að hann færi beint inn í hópinn og missti hann upp þar sem þær voru það nýlega lentar og engin lykt farin að berast frá þeim í þessu líka flotta logni.
Venus tók flottan sjón stand á þær og kom ekki nein ókyrrð á þær fyrr en ég fór að blanda mér í málin og upp fóru þær .ég var kominn of nálægt þó varla nema í þokkalegt gott skotfæri og en engin sat eftir.
Eftir tíu til fimmtán mínútur lendum við aftur í rjúpum en þá í tveimur.
Þannig var að ég hélt að Venus væri á stand .c.a. 100 metrum neðar í kjarrinu ef kjarr getur kallast og en ég hafði komið auga á tvær við ágætis kjarr og því ætlaði ég að leiða Francini inn á þær, en málið var að Venus var líka á standi á þær sömu en bara hinum megin við kjarrið og því þegar ég er að leiða Francini inn á þær þá er orðið svo aðþrengt að þeim að þær létta áður en ég næ að leiða Francini inn í þær.
Nú áfram er haldið og Venus að gera sig frábærlega vel og mun betur en ég átti von miða við það hvað ég hef lítið náð að sinna honum í langan tíma.
Ekki leið langur tími þar til hann tekur stand á öðrum hóp c.a. 6-8 fuglum.
Venus heldur flottum standi á þeim þar til ég kemst rétt í skotfæri enn þá létta þeir og færa sig 70 metra eða að næsta hól.
Ok, Venus sá ekki hvert rjúpunnar fóru og brynnir sér í smá drullupoll eftir að hafa tekið flotta eftir leit.
ég held að hólnum eftir að hafa sleppt Venusi í leit aftur og Venus tekur sjónstand á þær eftir þrjár mínútur. En sem fyrr var ég rétt kominn í skotfæri þegar þær létta og fara eitthvað út í buskan C.a. 200 metra niður á við.
Ég lét Venus fara í eftirleit og í fyrsta hringnum sem hann tók, þá tók hann stand á tvær, kara og hænu,
helvítið flott hjá honum, karli.
Ég ætlaði að bera Francini inn í standinn, en því miður léttu þær áður en það náðist og en Venus sat sem fastast sem fyrr .
Nú ég sleppi Venus og var ekki rjúpa í langan tíma þó svo ég hafi séð til Venusar að þefa of langi á eftir hrossagauk sem flaug aðeins of langt,,,,.
Svo var innkall og við settumst niður til að drekka af stút smá svona vatn, ég, Francini og þó Venus mest enda hann langþyrstastur eftir öll hlaupin og meðan við erum að hvíla okkur smá,,,og en ekki hvað, heilar tíu rjúpur sátu nálagt fimmtán metrum frá okkur og ekki voru þær stressaðar á R.V.K. mælikvarða.
Þá ákvað ég að nota Francini í þær þar sem hvorugur hundana vissi af þeim og gekk ég eitthvað í áttina að þeim til að sýna Francini þær sem ekki hafði komið auga á þær enn.
En eitthvað var ég að föndra við bandið og horfa niður þegar við vorum kominn eina tíu metra að þeim og sá ekki þegar þær léttu en náði þó að flauta Francini niður þegar ég sá að þær voru farnar.
Þetta var seinustu fuglarnir sem við sáum áður en við fórum niður í bíl.
En í heildina voru þetta tíu standar sem Venus tók og fór ég alveg frábærlega hamingjusamur heim og er enn að hugsa um og sjá fyrir hugskotum mínum þessi mómen sem ég átti með hundunum mínum.
Feddi ,þú passar kannski Francini fyrir mig þegar ég er í svoddan rjúpnageri til að ég geti æft Venus íuppflugi???? svar óskast,,,,,,
Í gærkveldi tók ég Byr í pössun þar sem Eiður sá sér mikla þörf á því að detta í það með sinni heittelskuðu á einhverri árshátíð hjá Járnblendinu .Og en þá er náttúrulega komið að mér að passa! En mikið djöfull er gaman að sjá þrjá karlhunda samankomna ,,,,,.
Venus þurfti strax að láta vita að hann var kóngurinn á heimilinu,, þó ekki með neinu ofbeldi eða neinu þannig, bara með urrrri og skottinu og sjá að Byr sé undirgefin á hans heimili. Auðvitað er Byr gáfaður og heilbrigður hundur og sýnir undirgefni á ókunnu heimilli. En Byr og Francini ná flott saman á meðan Venus fylgist með hverju fótmáli þeirra og urrar ef honum finnst of langt gengið.
Venus passar mikið uppá hvolpinn og passar að Byr og Francini leiki ekki of mikið saman hahahahaha.