Sælir
lÍtið búið að gerast í hundamálum hjá mér núna upp á síðkastið þar sem ég er búinn að vera með bílinn uppi á bukkum í þrjár vikur.
Er að skipta um drif og nöf að framan og hásingu að aftan en ástæðan fyrir því er sú að ég er að fara úr 4:66 í 5:29 hlutföll og líka vegna þess að ég er að fá gorma og diskabremsur að aftan.
Svo er ég að pæla í því að færa hásingu aftur um 15 cm.
En er þó ekki alveg viss með það að færa hásinguna.
Er orðin pínu óþreyjufullur með að koma bílnum á götuna aftur til að geta farið að fara með hundanna eitthvað í vinnu.
Bara svona smá eitthvað þar sem spjallið er frekar dauft hjá okkur.