Smá svona skondinn uppákoma hjá mér og hundunum í dag.
En þannig er að ef Francini tekur upp á því að naga og eða reina
að komast upp á borð hefur Venus verið duglegur að siða hann til
og ef ég hef ekki verið í sama herbergi og þeir félaganir þá hefur Venus
oft komið og látið mig vita og ég þá þurft að elta hann til að stoppa Francini.
Og í dag var ég inni í tölvuherbergi og gleymdi að loka hurðinni til að þeir félaganir færu ekki fram.
Svo verð ég var við að Venus kemur á harða spretti inn í herbergi og byrjar að úffa á mig og ég segi bara,, nei nei Venus minn þetta er allt í lagi. Hann sætti sig ekki við þetta svar hjá mér og byrjar að gelta kröftuglega að mér,
Jæja, jæja Venus minn er þér mál að pissa karlinn minn, en ég ætlaði þó að tefja aðeins lengur við tölvuna, en þá var gelt ennþá hærra að mér og ég lít þá í kringum mig,,og hvað??? Enginn Francini inni í herberginnu. ÚBBS hvað er nú í gangi hugsa ég og stend upp en þá leggur Venus á stað á harða spretti fram og en staðnæmist svo í hurðagættinni á eldhúsinu, og en ekki hvað, Francini búinn að ná í brauðpokann sem var uppi á eldúsborðinnu og var búinn með tæplega ¼ af brauðinu þegar mig bar að. Mikið helvíti brá honum svakalega þegar hann sá að ég var kominn en þó ekki meira en svo að hann náði einni brauðsneið í viðbót og ætlaði sér að reyna að komast með hana í burtu en að sjálfsögðu gekk sú fyrirætlun hjá honum ekki upp.
Venus fékk brauð að launum jocolor