Hjalti R.
Fjöldi innleggja : 33 Join date : 06/05/2008 Staðsetning : Akranesi Merkurteigur 8
| Efni: Re: Fréttir úr móunum. Þri Sep 02, 2008 2:06 am | |
| Þetta var alveg virkilega gaman uppi á heiði með hundana og þér líka Friffi minn. Nei í alvörunni, frábært að fá að fylgjast með þessum hvolpum þroskast úr þessum litlu óargadýrum og upp í þessa líka flottu hvolpa sem eru farnir að taka flotta standa. Svo skemmir ekki fyrir þvílíkt og annað eins sæki eðli sem þessir hvolpar fæðast með, úbbs bara þvílíkt og annað hafði aldrei hvarflað að mér að væri til í enska setanum. Það verður gaman að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér með þessa demanta okkar.
Síðast breytt af Hjalti R. þann Þri Sep 02, 2008 2:08 am, breytt 1 sinni samtals | |
|
Friðvin
Fjöldi innleggja : 88 Join date : 07/05/2008
| Efni: Fréttir úr móunum. Sun Ágú 31, 2008 2:48 pm | |
| Sælir félagar. Ég og Hjalti skruppum á heiðina í dag. Aðal tilgangur ferðarinnar var að hreyfa og æfa hann Venus, en að sjálfsögðu fengu þeir bræður Franco og Francini að koma með. Nú eru þeir bræður að nálgast 5 mánaða aldurinn og ætti því að vera í lagi að fara með þá í stuttar gönguferðir og ólíkt skemmtilegra er að ganga með hundana á veiðislóð en á malbikinu í bænum. Að sjálfsögðu höfðum við myndavélina með í för. [img] [/img] [img] [/img] [img] [/img] [img] [/img] [img] [/img] [img] [/img] | |
|