Jæja þá er lokið keppnisflokki sem haldinn var á Mosfellsheiði. Veður var þokkalegt en fuglinn var mjög laus. Hundar náðu aldrei að festa stand áður en hann var floginn. Eros fór út úr keppni fyrir að heiðra ekki stand hjá Heiðu sem reyndist bara hrossagaukur. Dímon og Nóra voru næst út, Nóra missti upp fugla sem hún var með í nefinu en náði ekki að festa stand á, en báðir hundar rólegir við uppflug. Næstir voru Teitur og Stígur, Teitur missir upp fugla tvisvar og eltir í annað skiptið og er þar með út. Næst voru út Stígur og Heiða, Dómarar töldu að Heiða hefði fælt upp þá fugla sem komu fljúgandi yfir okkur og settu báða hunda út. Heiðu aðallega fyrir það að vera of sambandslaus við leiðanda og Stíg fyrir að hafa haft tækifæri á 3 fuglavinnum en ekki náð að moða úr tækifærunum Þá voru bara eftir Nóra og Dímon. Þau voru 23mín. í bráðabana líkt og síðast með Erosi (nema að sá bráðabani stóð í 45mín.). Nóra fælir upp karra sem sest eftir 10m. Nóra stendur kyrr eftir en Dímon er spenntur og veit af fuglinum. Dómari ákveður að báðir hundar skuli settir í taum og sendir út jafnhliða. Dímon hleypur í aðra átt en Nóra fer beint á fuglinn og festir stand (sumir segja að hún hafi verið með dillandi skott). Fugl léttir, um leið "whoa" ég Nóru og fer að leita eftir byssunni sem ég hafði gleymt í spenningnum í vasanum. Fuglinn var næstum kominn í hvarf þegar ég næ loks byssunni og hleypi af skoti. Það er jú dómarans að meta aðstæður og lögð var út bráð sem Nóra sótti með elegans. Niðurstaða var sú að einn hundur fékk sæti í keppnisflokki og það var:
Pointer Vatnsenda Nóra 1.KF
Kv,
Á.H.