Sælir félagar.
Eins og sjá má er heimasíðan okkar nokkuð lífleg og ætti að vera gaman fyrir menn að heimsækja hana.
Friðvin hefur verið feikna duglegur að afla efnis inn á hana og á hann heiður skilið fyrir
það.
Nú hafa árangrar þessa árs bæði í veið og sýningum verið settar inn á síðuna okkar.
Við höfum verið að fá feikna góða heimsóknir inn á síðuna, bæði hér heima og erlendis frá.
Bandaríkin eru þar sterkastir inni af erlendum þjóðunum og eru svipað mikið inni og við Íslendingarnir.
Þetta er fyrir nóvember og má sjá hvað BN er duglegir að sækja efni frá okkur.
Iceland is 6.11 GB
United States us 4.79 GB
En alls sóttu síðuna í nóvember 2666 mans og 12.491 síðan við opnuðum hana í maí og því ekki hægt annað en að vera ánægðir með þær heimsóknir sem eru framar okkar björtustu vonum.
Sett var upp excel blað til að menn gætu fyllt það út með prófárangri hundanna sinna og en sem komið er, er einungis einn sem hefur skilað inn árangri hundsins síns.
Hvort þetta hefur verið og eða er einhver facebooksíða okkar Friffa er að sjálfsögðu bara undir ykkur sjálfum komið.
Ef ekkert efni kemur frá ykkur þá verður þetta bara facebook sían okkar Friffa, og ekkert mál fyrir okkur það.
Ef hún endar svoleiðis mun titilinn á henni að sjálfsögðu breytast aðeins.
Fyrir hausinn klúbbur enskra mun koma annar haus og þar mun standa, Hrímþoku Franco og Hrímþoku Francini.
En það fyndnast er að þeim sem finnst þetta hafa verið einhver einkasíða og hafa verið að setja út á það hafa sjálfir ekkert efni lagt til á síðunna en leyfa sér samt sem áður að gagnrýna hana niður.
Við báðum um að þið mynduð senda myndir og sögur af veiðunum eða bara af hverju sem er en engin einasta mynd eða saga hefur komið frá ykkur ennþá.
Þó að við Friffi höfum tekið upp á okkar einsdæmi að starta þessari síðu getið þið ekki ætlast til þess að við eiðum öllum okkar frítíma í að hringja út og biðja um að fá sendar myndir og upplýsingar um hundana ykkar og séum svo að leita af efni út um allan heim til að koma út á síðuna.
Ef þið viljið sjá líflega og skemmtilega síðu fyrir klúbbinn okkar verðið þið líka að taka þátt í að afla efnis á síðuna.
Við höfum reyndar gert það fram að þessu að hringja út og eða spjalla við menn en lítil sem engin viðbrögð fengið frá félögunum okkar.
En hvað með þig félagi? Ætlar þú að taka þátt í að búa til líflega og skemmtilega heimasíðu fyrir klúbbinn okkar ???
Læt fylgja með link á heimasíðu þar sem miklir og sterkir litir einkenna marga þessara hunda.
Kveðja. Hjalti R.
http://www.delmangia.it/niki.htmhttp://www.delmangia.it/fotogallery.htmhttp://www.delmangia.it/I_nostri_campioni.htm